Jólagjöfin hennar Lindu (í fyrra)

Miðvikudagur, nóvember 25th, 2009

lindaÞegar jólaösin var sem mest í fyrra og Linda var niðrí í Spilavinum öll kvöld (eins og núna, að taka upp ný spil og gera klárt fyrir morgundaginn), þegar strákarnir voru sofnaðir og Ragna ekki enn fædd, þá fór ég niður á skrifstofu, hallaði hurðinni og glamraði inn lag sem ég samdi fyrir Lindu. Gaf henni svo lagið í jólagjöf (ég gaf henni fleiri gjafir til öryggis). Svo ætlaði ég alltaf að setja lagið á Netið og leyfa ykkur öllum (þér) að sækja lagið og hlusta á það.

Eníhú, þetta varð að allsherjar naglasúpuverkefni þar sem alltaf var eitt smáatriði sem mátti laga. Jæja, það eru enn smáatriði sem má laga en ég ætla ekki að láta árið líða án þess að hafa komið þessu frá mér.

Svo hér er lagið. Það heitir einfaldlega Linda, er á ímyndaðri plötu sem heitir Do Be Do (ég er svo existensíalískur, sko) og er sett saman með GarageBand. Gjössovel.

Creative Commons License
.