Fyndið

Hvað er hvoru tveggja?

Þriðjudagur, september 30th, 2008

Mamma var að senda mér góða sögu:

Kona fór í matvöruverslun um daginn og fór á kassann með einhverjar 2 vörur og sagði við kassastarfsmanninn (sem var unglingsstrákur):  ’Ég ætla að fá hvoru tveggja.’

Strákurinn horfði á hana: ‘Hvað er hvoru tveggja?’

Þá galaði starfsmaðurinn á næsta kassa (líka unglingsstrákur): ‘Hey ég  lenti í þessu um daginn, þetta þýðir hún ætlar að fá þetta bæði!’