Hvernig á að þekkja “modern” letur
Miðvikudagur, júlí 16th, 2008
Letur skiptast í nokkra flokka. Flestir hafa áttað sig á muninum á serif og sans-serif. Dæmi um algengt serif letur er Times og algengt sans-serif letur er t.d. Helvetica (eða Ariel fyrir ykkur Windows fólk).
Hins vegar vita færri hvað t.d. slab-serif er — og enn færri (ég meðtalinn) hvað modern letur er. Að minnsta kosti þar til núna:
Modern, or “Didone“, fonts have high contrast between thick and thin elements, and their axis of “stress” or thickening is perfectly vertical.
Ég datt um þessa skýringu á Wikipediunni, þegar ég las mér til um Computer Modern eftir ábendingu frá Maclantic. Forvitnir ættu að kíkja á línkana við serif/sans-serif að ofan. Góður fróðleikur þar um helstu leturflokkana.








