Íslenskt mál

Vill einhver fleiri greinarmerki?

Mánudagur, febrúar 16th, 2009

Ég var að kynnast nýju greinarmerki um daginn og gott ef ég er ekki bara strax orðinn svolítið skotinn. Reyndi svo að lesa mér meira til um það áðan og komst að því að merkið er eldri en tvævetur og hefur aldrei almennilega fest sig í sessi.

Merkið sem um ræðir er sýnt á myndinni hér til hliðar og er speglað spurningamerki (ekki á hvolfi, það er annað). Hugmyndin, sem kom fram á 19. öld, var að nota það sem kaldhæðnimerki — til að gefa til kynna að setningu bæri að skilja á annan hátt en hún er skrifuð. Í bókinni sem kaldhæðnimerkið var kynnt í var einnig reynt að koma fleiri merkjum að, sbr. vafamerki, ástarmerki o.fl..

(meira …)