Jafnrétti í orði
Þriðjudagur, mars 18th, 2008Það er pistill í Fréttablaðinu í dag sem fjallar um orðin ólétta og ófrísk ásamt fleiri orðum sem gefa neikvæða mynd af því þegar kona gengur með barn. Til að gera langa sögu stutta, þá er ég algerlega sammála og ætla ekki að ræða það frekar (tel það liggja í augum uppi og hlakka til að sjá hugmyndir um ný orðasambönd eða orð).
Aftur á móti er í sömu grein hrós til hugmyndar Örnu Schram um að nota heldur sjálfstæðir foreldrar í stað einstæðra foreldra, þar sem einstæðingur ku hafa á sér svo slæma ímynd. Þessu er ég algerlega ósammála.
Að vera einn ber ekki í sér að vera einmana. Að vera einstætt foreldri ber heldur ekki í sér að vera í slæmri stöðu, þó það sé vissulega algengt. Orðið sjálft felur það eitt í sér að maður er einn í hlutverki sem oftast er í höndum tveggja. Sem er líka alveg rétt.
Sjálfstætt foreldri eru sterk og falleg orð sem hver sem er yrði stoltur af að bera. En ef það á að eyrnamerkja orðin þeim sem einir sjá um uppeldið á sínu heimili, hvað erum hinir? Annað hvort eru þau ósjálfstæðu foreldrarnir, til aðgreiningar frá hinum sjálfstæðu, eða að þau eru líka sjálfstæðir foreldrar ? sem hlutleysir orðið algerlega og gerir að engu.
Betur heima setið hvað það varðar.
It is far better to be alone than to wish you were.
- Ann Landers








