Markaðsmál

Staðsetningin skiptir máli

Fimmtudagur, janúar 31st, 2008

24 stundirÞað er oft sagt að það séu þrjú atriði sem skipta máli með val á húsnæði. Það ku vera staðsetning, staðsetning og staðsetning.

Hægri síðu þjóðsagan lifir góðu lífi hér á landi og hefur enn gífurlega áhrif á umbrot blaða í dag (þrátt fyrir að vera algerlega á misskilningi byggð).

Annað sem getur gerst í umbroti er óheppileg tengslamyndun. Svipað eins og að setja hundamat við hliðina á morgunkorni í búðinni.

Það er einmitt það sem kom fyrir í 24 stundum í dag á bls. 24. Ekki alveg hugmyndin sem maður vill fólk fái í hausinn þegar það hugsar um vöruna, er það?

Ég myndi biðja um aðra birtingu… á kostnað blaðsins.