Markaðsmál

Mótsagnakenndur símsvari

Mánudagur, nóvember 26th, 2007

Ég var að hringja í vin minn áðan og fékk þessi skilaboð:

“Númerið sem þú valdir er á tali. Þú getur pantað símtal með því að ýta á fimm. Símtalspöntun kostar níu krónur og nítíu aura.”

Ég ýti á fimm.

“Þjónustan er ekki fyrir hendi.”

Hver var eiginlega tilgangurinn með fyrri símsvaranum? Mætti ég þá heldur fá “á tali” hljóðið aftur!