Pælingar

Fleiri leiðir til að láta okkur borga brúsann?

Fimmtudagur, nóvember 27th, 2008

Ég er að horfa á Björgvin viðskiptaráðherra í viðtali í Íslandi í dag. Hann vill halda í verðtrygginguna og býður á móti einhvers konar greiðslujöfnun og fleira sem ég kann ekki að nefna. En það er sama hvernig ég hlustaði og hvernig ég sneri að sjónvarpinu, ég gat ekki heyrt annað en: “Við erum að finna fleiri leiðir til að láta ykkur borga brúsann þannig að þið finnið minna fyrir því.”

Felur greiðslujöfnun og frysting og allt það ekki bara í sér að við borgum allan kostnað, en bara minna í einu og lengur? Er það bara ég?