Plögg

Þjálfaðu orðaforðann og bættu í matarforðann

Mánudagur, nóvember 12th, 2007

Picture 1-6 Lesandi benti Seth Godin á vef sem lofar að gefa hrísgrjón fyrir hvert rétt svar sem þú svarar einföldum krossaspurningum um orð (á ensku) sbr:

repudiate means:
linger
scrawl
amputate
reject

Fyrir utan hve gaman mér finnst að prófa mig í svona hlutum, þá gerir það upplifunina enn betri að gefin eru 10 hrísgrjón fyrir hvert rétt svar. Fyrir þá sem hvá og hugsa ?það er ekki neeeeitt!? bið ég aðeins um eitt:

Finnið taflborð. Leggið eitt hrísgrjón á fyrsta reitinn. Tvö á þann næsta. Fjögur á þann við hliðina, svo átta og koll af kolli. Þegar þið eruð búin að því ? gefið það.

Það væri gjöf sem sæmdi keisara.