Hvað er í matinn?
Mánudagur, september 24th, 2007
Það er svo gaman að sjá þegar einföld og skýr hugmynd verður að veruleika. Á vefnum Hvað er í matinn? er hægt að velja sér matseðil eftir aðalhráefni (fiskur, kjöt, grænmeti o.s.frv.), eða bara láta tölvuna sjá alfarið um það. Einum músarsmelli síðar er matseðill mánaðarins tilbúinn, sérhannaður eftir þínum þörfum ? og breytir meira að segja magni eftir fjölda persóna sem verða í mat. Og ef þú skráir þig inn geturðu sent innkaupalistann fyrir uppskriftina sem SMS (auk einhverra tilboða og þ.h.).
Ég er alveg til í kalda pastasalatið með Mozzarella á morgun.








