Nýr og glæsilegur Þróttaravefur

trottur_isVið Linda erum mjög stolt af að kynna vefinn sem hefur fyllt tímaplanið okkar undanfarna mánuði: trottur.is. Vefurinn fór í loftið 23. maí, en síðan þá hefur maður verið upptekinn við að tína upp smáhlutina og fínpússa allt. Þetta hefur verið gríðarstórt verkefni og mjög skemmtilegt. Ég hef farið niður á áður ókannað dýpi í Joomla! með viðbótum á við Community Builder og finn að enn er mikið ókannað. Möguleikarnir eru miklir og spennandi að fá að skoða áframhaldandi þróun á vefnum.

Eitt vekur mikla athygli á vefnum — aðalleiðsögukerfinu er ekki skipt upp í deildir (fótbolti, handbolti…) heldur er því skipt upp í svæði tengd tilgangi heimsóknarinnar á vefinn: Fréttir, Bloggið (samskipti þjálfara við iðkendur og forráðamenn), Myndabanki (sem allir skráðir notendur geta bætt í) og Upplýsingar (Æfingaplön, iðkendalisti, símanúmer og allt það).

Markmiðið með skiptingunni er að gera notendum auðvelt að nálgast þær upplýsingar sem þeir vilja, en um leið stilla vefinn af þannig að hann geti stækkað. T.d. eru miklir möguleikar í uppröðun á hverju svæði sem þarf ekki að hafa áhrif á önnur svæði.

Ég er að minnsta kosti mjög spenntur.

Svo var JoomlaPolis, forritarar Community Builder að kynna nýja viðbót sem gerir vefstjórum kleift að búa til sérsniðinn aðgang fyrir notendur (sbr. “Þjálfari”, “Iðkandi” o.s.frv.). Sú viðbót markar vafalítið framtíðina fyrir trottur.is — og okkur.

Leave a Reply