Veikindi á Sigluvoginum
Nokkur veikindi hafa hafa hrjáð heimilisfólkið á Sigluvoginum undanfarna daga. Í gær tók ég svo upp á því að veikjast líka og lá hríðskjálfandi undir teppi með 38,5 stiga hita. Við vorum saman feðgarnir uppi í sófa í gær og hreyfðum okkur sem minnst. Máni er orðinn betri, en ég er enn slappur. Krossa fingurnar, vona að Linda sleppi og að ég verði betri á morgun.








