Braille veggjakrot
Ég fékk áhuga á blindraletri þegar ég var í Listaháskólanum og gerði nokkrar tilraunir með að búa til leturgerðir í Braille. Það vakti furðu mína hve mikilli tregðu ég mætti þegar ég viðraði hugmyndir mínar í blindrasamfélaginu. Flestir spurðu einfaldlega: Til hvers?
Mér fannst ? og finnst enn ? alveg á það reynandi að stækka upplifun blindra við lestur með fleiri leturtegundum. Einföld útfærsla væri t.d. skemmt letur. Þá var ég spurðu hvort það væri ekki bara erfitt að lesa það. En það er einmitt málið með skemmt letur! Það er það sem gerist þegar letur skemmist, hvort sem um er að ræða venjulegt letur eða Braille!
Þessi stutta saga um áhuga minn á Braille sýnir vonandi af hverju ég kýs að sýna þetta myndband. Verknaðurinn er svo dýrðlega tilgangslaus í eðli sínu, en um leið alveg dásamlegur.
(Ég er enn opinn fyrir samstarfi um nýjar Braille leturgerðir
)









september 27th, 2007 at 22:14
Jamm… tilgangsleysi. Pældu í http://www.tryggingamidstodin.is/tm/stakar/nr/1614 þar sem boðið er upp á sérstakan samskiptamáta fyrir táknmál. Súper góð hugmynd myndi margur segja, en; heyrnarlausir geta lesið! So the point is?
Annars, bjalla í þig bráðlega
október 3rd, 2007 at 9:08
Vá! Þetta er stórfurðuleg hugmynd! Táknmál við hliðina á ritmáli!
Það væri gaman að heyra hvaða hugmynd liggur að baki þessu, en ég er sammála þér, þetta virðist vera ofboðslega tilgangslaust.