Fallegur fasteignavefur

Ég varð fyrir þeirri ánægjulegu upplifun um daginn að fá að uppgötva mjög fallegan og vel gerðan vef Félags fasteignasala, fasteignir.is (vefurinn var opnaður 1. september 2008). Fasteignir.is er einfaldur og skýr í notkun (sem er hægara sagt en gert) og látlaus í útliti. Hönnuðurinn er óhræddur við hvíta pixla (e. white space) og leyfir loftinu að flæða þar sem við á, sem gefur vefnum léttleika og fókus.
Fasteignir.is keyrir á vefkerfi frá Hugsandi Mönnum og dreg ég því þá ályktun að HM hafi líka hannað vefinn. Endilega leiðréttið mig ef svo er ekki, svo hrósið rati á réttan stað.








