Illa farið með gott auglýsingapláss

200711061454 Það kom mér þægilega á óvart þegar ég las grein í 24 stundum um að drykkurinn Ávöxtur sé ekki með neinum aukaefnum ? og engum viðbættum sykri! En af hverju vissi ég þetta ekki? Ég hef meira að segja keypt og drukkið eitt eintak af þessu, án þess að hafa hugmynd um þetta! Hvað er málið?

Málið er einfaldlega að umbúðirnar á þessum drykk eru nefnilega alls, alls ekki vel heppnaðar. Og það þýðir ekki að þær séu misheppnaðar=ljótar (þó þær falli ekki að mínum smekk). Það þýðir einfaldlega að upplýsingarnar komast ekki til skila. Það stendur ekki stórum og skýrum stöfum: “Ávaxtasafi með enginn viðbættum sykri!”.

Heilu staflarnir og raðirnar af fernum sitja þegjandi í matvöruverslunum og gera enga tilraun til að segja foreldrum frá því að hér sé komin heilbrigð viðbót við drykkjarflóruna. Það kalla ég illa farið með gott auglýsingapláss (sem slaufar líka pistilinn ágætlega saman við fyrirsögnina).

Leave a Reply