Ef það er þess virði að gera það?
Hvaðan kom orðið Evróvisjón? Það er hvorki fugl né fiskur. Það virðist hafa lent í höndunum á einhverjum íslenskuáhugamanni sem missti áhugann á miðri leið. Ef einhverjum finnst þurfa að þýða þetta orð – sem er hið besta mál – þá ætti sá hinn sami að klára dæmið!
Evrósýn (ojbjakk).
Hana, gjöriði svo vel! Sjálfur sletti ég Júróvisjón. Ef maður ætlar að sletta, þá á maður að gera það almennilega!








