Opnað allan daginn?

200710030903 Í hvert sinn sem ég geng inn um dyr á verslun sem auglýsir opnunartíma við innganginn eða skoða vefi sem auglýsa sérstaklega opnunartíma fyrirtækisins, þá þarf ég að bíta í tunguna á mér. Opnun er hreyfing! Annað hvort eru fyrirtækin opin eða lokuð, varla eru þau að opna allan daginn?

Hjá mér er annað hvort opið frá kl. X – Y, eða afgreiðslutími frá X-Y.

opnunartími, ugh!

Leave a Reply