Vont nafn verður langt nafn

24 Bladid Morgunblaðið var að tilkynna hátíðlega að nafni Blaðsins verður breytt á morgun í 24 stundir. Nú hef ég sagt við alla sem nenna að hlusta (og nokkra aðra líka) að Blaðið er einstaklega vont nafn á blaði. Það eru ótal skiptin sem ég hef þurft að tvítaka nafnið þegar ég ætla að ræða eitthvað sem stóð í því:

- Ertu búinn að lesa Blaðið í dag?
- Blaðið? Fréttablaðið?
- Blaðið blaðið! (Urr)

Nýja nafnið er nú engin snilld heldur. Langt og leiðinda tungubrjótur.

Svolítið eins og 365 miðlar.

Leave a Reply