Gagnslausar upplýsingar frá Símanum

Við skiptum yfir til Símans í haust með allt okkar hafurtask. Nær einungis út af Sjónvarpinu (á fullum 8mb hraða, ekki 4mb tengingu Vodafone), þar sem ég sá lítinn nær engan mun á verði. Það er skemmst frá því að segja að færslan hefur síst gengið vel. Eiginlega hefur Símanum tekist að gera flest allt vitlaust sem hægt er í svona flutningum. Ef þetta hefði verið flugferð væri farangurinn minn í Hong Kong.

Milli þess sem þeir rukka okkur fyrir óumbeðna þjónustu og leika sér að skipta út kennitölum rétthafa milli allra á heimilinu nema þess rétta, þá senda þeir manni tölvuútskriftir þegar þeim finnst einhverju málinu vera lokið. Hér er dæmi:

Subject: Tilkynning um málalok á máli nr. 00411372 Sæl(l) Þorlákur

Úrvinnslu máls nr. 00* sem þú óskaðir eftir að við skoðuðum er lokið.

Ef þú hefur frekari athugasemdir eða fyrirspurnir hikaðu ekki við að hafa samband við okkur í síma 8007000 og vísaðu í ofangreint málsnúmer.

Kveðja Starfsfólk Símans

Ætli það sé ekki einfaldast að birta bara svarið mitt:

Sæl útskrift úr tölvu,mikið væri nú ánægjulegt ef þú gætir komið forritara þínum til skila að þessar upplýsingar sem þú sendir mér eru vita gagnslausar, þar sem ég hef ekki hugmynd um hvaða mál þú átt við. Númerið sem þú sendir mér hefur aldrei komið fram í samskiptum mínum við starfsmenn Símans og hef ég því engar forsendur til að vita um hvað þú ert að tala.

Ég hef áður gert athugasemd við þessa pósta frá þér, en ég sé að ekkert hefur breyst síðan þá.

Nú ætla ég ekki að þú ert forrituð til að svara spurningum og vona því að mannvera komi nálægt því að lesa tölvupósta sem þennan og vísa því næstu setningar til þeirrar manneskju:

  • Vinsamlegast sendið mér vitrænan tölvupóst sem gefur til kynna um hvaða mál er rætt og hver málalokin eru. Að öðru leyti er ekkert gagn af póstsendingum sem þessum.

Að því sögðu þá hefur starfsfólkið sjálft verið fyrirtækinu til sóma. Líklegra er að einhver brotalöm eigi sér stað í samskiptakerfinu innanhúss.

Þegar 12 mánaða tímabilinu er lokið mun ég líta í kringum mig aftur. (Hristir hausinn niðurlútur).

Leave a Reply