Fasteignaverð eins og rússíbanareið!

Hér er áhugaverð útfærsla á ferli. Fasteignaverð í Bandaríkjunum frá 1890 til nútímans (leiðrétt m.t.t. verðbólgu) plottað í rússíbana. Ekki alveg jafn upplýsandi og mynd, en ágætis skemmtun. Reyndar væri hægt að gera ferðina áhugaverðari með því að skjóta að manni dagsetningum við og við, svo maður átti sig á hvar maður er í tíma.
[Breyting: Ég tók eftir því að ártöl birtast í neðra hægra horninu ;) ]

Munið að hafa hendur og höfuð í vagninum allan tímann.

2 Responses to “Fasteignaverð eins og rússíbanareið!”

  1. Snorri Gunnarsson Says:

    jæja það er ekkert verið að láta vita að hér sé hafið blogg í massavís!

    Snorri

    Helvíti er öryggiskóðinn hjá þér erfiður

  2. Þorri Says:

    Heja!

    Já ég hreinlega gleymdi að láta boð út ganga. Þetta berst hægt og sígandi á meðan það bætist við efni.

    En öryggiskóðann hef ég einfaldað. Vona að hann verði ekki til trafala ;)

Leave a Reply