Þegar maður horfir á ekkert

Ég hef alltaf jafn gaman af því að segja frá því að þegar ég var í heimspeki í HÍ á sínum tíma notaði ég tækifærið og skrifaði 20 blaðsíðna ritgerð um ekkert. Fyrir utan frásagnar- og skemmtanagildið, þá var það algjörlega þess virði. Ekkert er býsna áhugavert — a.m.k. heimspekilega séð.

Áðan var verið að benda mér á YouTube myndband sem heitir “Mikilvægasta mynd sem tekin hefur verið”. Hún fjallar um Hubble mynd sem var tekin með því að horfa á ekkert í smá tíma (10 mínútur eða svo). Mögnuð mynd og ekki nema 6 mínútur. Algerlega þess virði.

Leave a Reply