10 OS X forrit sem þú gætir haft gagn af
Ég hef alltaf svo gaman af svona listum sem telja upp mismunandi forrit. Mér finnst svo gaman að sjá hvað aðrir eru að nota og þeirra nálgun á hlutina. Maður lærir alltaf eitthvað nýtt.
Af forritum sem eru talin upp á þessum lista þá eru AMM (að mínu mati) eftirfarandi gagnlegust:
- Wallet (geymir lykilorð, PIN o.fl.)
- Paparazzi (tekur skjámynd af heilli vefsíðu (líka því sem sést ekki á skjánum)
- Democracy (RSS fyrir vídeóblogg)
Hér er annar listi sem ég rakst á á meðan ég var að skrifa þennan póst. Það besta við báða þessa lista er að þeir eru nokkuð vel útskýrðir. Þ.e. hvað forritin gera o.þ.h.
Fleiri listar eru alltaf vel þegnir








