3 bullorð sem fjölmiðlafólk heldur upp á
Það eru þó nokkur orð og frasar sem smitast á milli í fjölmiðlaheiminum að því er virðist án þess að fólk veiti því athygli. Þrjú þeirra fá mig til að gnísta tönnum í hvert skipti sem ég les þau eða heyri:
Vöntun
Þegar fólk býr við að fá ekki það sem það vantar, þá heitir það skortur!
Mannlegur harmleikur
Orðskrípi í ætt við steluþjóf. Einhver gæti þrætt og sagt orðið eiga við þegar fólk slasast eða deyr í harmleikjum, en ég kaupi það ekki. Harmleikur er stórt orð og stendur alveg eitt og sér.
Þjónustustig
Orðinu til varnar, þá held ég hafi einu sinni heyrt það notað á þann hátt sem ekkert annað orð gat komið í staðinn. Ég man ekki hvað það var, enda er orðið nær alltaf notað þegar það þarf ekki. Í lang-langflestum tilfellum er góð þjónusta kölluð hátt þjónustustig og slæm þjónusta lágt þjónustustig.
Sem sagt, ekki alltaf hátt íslenskustig í fjölmiðlaheiminum.








