Að para mat saman

200712030920200712030924Fyrir mataráhugafólk eins og mig er alltaf gaman að læra nýjar leiðir til að nálgast matargerð, nýjar leiðir til að hugsa um mat. Á vefnum Foodpairing.be er hægt að sjá hvaða matartegundir eiga skapgerð saman út frá efnislegri uppbyggingu. Hljómar svolítið flókið en er auðvelt að lesa og skýrt sett fram.Vefnum er skipt í tvo hluta:

  • Að para mat saman. Þar velur þú hráefni og færð tré sem sýnir skyldleika í bragði við aðrar matartegundir.
  • Útskiptanleiki. Þar velur þú krydd og færð tré sem sýnir mismunandi samsetningu annarra krydda sem hægt er að nota í staðinn. Sbr. myndin af basil hér til hliðar. Þetta er nokkuð nýtt fyrir mér og virkar framandi að geta t.d. notað svart te, all spice, tarragon og ashanti pipar í staðinn fyrir basil. Hér er útskýring þeirra á Foodpairing á útskiptanlegum mat:

A food product has a specific flavour because of a combination of different flavours. Like basil taste like basil because of the combination of linalool, estragol, ?. So if I want to reconstruct the basil flavour without using any basil, you have to search for a combination of other food products where one contains linalool (like coriander), one contains estragol (like tarragon),… So I can reconstruct basil by combining coriander, tarragon, cloves, laurel. The way to use it is to take from each branch of the plot one product and make a combination of those food products.

Að lokum nefna þeir að innihaldslýsingin ein og sér nægir ekki til að búa til góðan mat. Góður matur felst líka í jafnvæginu milli hráefna.

Leave a Reply