Auglýsingar sem ljúga
Er ég sá eini sem hvái og sýp nettar hveljur þegar þvottaefni er auglýst?
Brosandi kona (eða karl) sýnir klósett sem er viðbjóðslega óhreint. Þvottaefni er sett í það. Vavúmm! Klósett er hreint!
Í auglýsingum þarf ekki nema tvær sekúndur til að leysa upp meiriháttar stíflu í vaskinum þínum! Litlu hengjurnar sem settar eru á klósettbrúnina hreinsa klósettið aaaaaalveg! Einn dropi af ákveðnum uppþvottalegi leysir upp heilt fat af fitu!
Fantasía sem jaðrar við ofskynjanir.
Ef við fáum þessa sannleikssiðfræði að láni og yfirfærum hana á bankaauglýsingar, þá hef ég á tilfinningunni að fleiri gerðu athugasemdir:
Maður er fátækur. Hann finnur tíkall á götunni. Leggur hann í bankann og… Vavúmm! Bankabókin hans fitnar í höndunum á honum og peningum rignir yfir hann. Rödd segir: Í bankanum okkar verða allir ríkir!
Ég held það nú.








