Bíll fyrir alla?
Ég var minntur eina áhugaverða bílaauglýsingu enn í Blaðinu áðan:
Við erum á móti fordómum [!?]. Citroen C1 er fyrir kynhneigt fólk.
Á móti fordómum er furðuleg staðhæfing. Svipað eins og að segjast vera á móti neikvæðni.
Ef mér reiknast rétt, þá ætti allt fullorðið fólk að vera kynhneigt og C1 því fyrir alla. Citroen gat sem sagt ekki valið markhóp og segir C1 því henta öllum. Sem fyrirfram er hægt að fullyrða að er ekki rétt. Sama hve góður C1 er.








