Ég heyri í þér, þú mátt hætta núna
Eins og áður hefur fram komið hjá mér er ég algerlega ósammála mótmælaaðgerðum flutningabílstjóra. Það er vissulega gaman að sjá mótmælaþrótt hlaupinn í þjóðina, en ég vildi óska að það væri út af einhverju öðru en þessu málefni.
Að því sögðu, þá er óþolandi yfirlætistónn ráðamanna sem segja “mótmæli móttekin – farið að vinna”. Ekkert í orðunum felur í sér ákvörðun í eina eða aðra áttina. Engin vísbending um að ákvörðun verði tekin fyrr eða síðar. Svipað eins og Bush sem svarar mótmælendum alltaf: “Eruð þið ekki fegin að mega mótmæla?”.
Það vantar bara að ráðherra klappi á kollinn á flutningabílstjórunum á meðan hann segir þetta.









apríl 11th, 2008 at 6:09
Já smáborgararnir væla, ég segji fyrir mitt leyti – loksins loksins að einhver gerir eitthvað annað enn að væla við matarborðið. Skítt með málstaðinn – vér mótmælum allir.
Annars fannst mér fyndið að sjá 38 tommu trukkana í mótmæla stússi um daginn, f