Enn hneykslast fólkið (20 árum síðar)
Það kemur líklega fæstum sem þekkja mig á óvart að mér finnst nýja auglýsing Símans mjög skemmtileg. Hún fær mig kannski ekki til að hlaupa út í búð og fá mér 3G, en ég tengist fyrirtækinu betur – fæ á tilfinninguna að það sé á sömu bylgjulengd. Ekkert ósvipað því sem Tal gerði á sínum tíma.
Mér kemur hins vegar á óvart að rúmum tuttugu árum eftir Meaning of Life eftir Monty Python og Mel Brooks gerði History of the World sé enn til fólk sem hneykslist á þessum efnistökum.
[Viðbót: Life of Brian, Þorri! Life of Brian!]
Sýnið stuðning ykkar í verki og snarið ykkur í Jay and Silent Bob’s Secret Stash og skellið ykkur á einn Buddy Christ bol. Mmm… Dogma, það var fín mynd.








