Fólkið á Netinu
Seth Godin benti á ágæta hugvekju á Squidblog. Ég skutlaði textanum á íslensku:
- – - – - – - – - – - – - – - – - – - – - -
Fólkið á Netinu er raunverulegt fólk.
Ef þú sendir dónalegan tölvupóst, þá er raunveruleg manneskja á hinum endanum sem mun fá hann.
Ef þú kveikir elda á spjallborðum, þá ertu að eyða tíma fyrir raunverulegri manneskju.
Ef þú sendir rusl-tölvupóst (e. spam), þá lætur það þig líta virkilega illa út.
Ef þú skrifar MEÐ STÓRUM STÖFUM, þá hljómar það eins og þú sért að öskra.
Ef þú vilt eitthvað lagist þín megin, prófaðu að biðja einhvern í stað þess að heimta.
Ef þú gefur, þá er ekki ólíklegt þú fáir líka.
Ef þú bloggar bara til að rífast, ekki láta það koma þér á óvart fólk hætti að treysta þér.
Ef þú tekur þátt í samvinnu, þakkaðu fyrir þig.
Ef þú ert sjálfstæð(ur), segðu nei takk.
Ef þér líkar vel við einhvern, segðu honum/henni frá því.
Ef ekki, stattu þá upp frá tölvunni.
Ef þú ert að gefa svörun, leyfðu einu atriði að stjórna ferðinni.
Ef þú færð svörun, gerðu þér grein fyrir að manneskjan þarf að láta sig hlutina að miklu varða til að svara.
Ef þú gerir mistök, biðstu afsökunar.
Ef þú biðst afsökunar, þá skaltu meina það.
Ef þú brosir, þá skaltu meina það líka.
Ef þér líkar ekki eitthvað, ekki gera það.
Ef þér líkar eitthvað, segðu öðrum frá því.
En miklu mikilvægara er:
Gefðu fólki séns.
Sénsinn sem þú átt líklega skilið líka.
Fólk meinar vel 99% af tímanum.
Þú örugglega líka.
Segðu takk upphátt og oft.
Reyndu að gera einhverjum góðan dag.
Að öllum líkindum gera þau þinn líka.








