Frábær Lennon viðtöl, demó og fleira
iTunes podköst eru alveg magnaður banki af alls konar efni. Ég er ekki frá því að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, enda er margbreytileikinn þarna ótrúlegur.
Þessa dagana er ég mest að hlusta á podkast sem heitir The Lost Lennon Tapes. Þetta eru útvarpsþættir frá 1988 sem fara yfir feril Lennon og birta alls konar sjaldgæft efni, demó-útgáfur af lögum, viðtöl við Lennon, Sean og fleira.
Fyrir Lennon aðdáanda eins og mig er þetta hrein gullnáma. Bítlaaðdáendur ættu líka að hafa gaman af þessu, svo og allir sem hafa almennan áhuga á tónlistarsögunni.








