Fréttablaðið sem HTML, bara “vá”!

Frettabladid-1
Vel getur verið að ég sé að benda á bláan lit himinsins, en ég verð bara að benda á Fréttablaðið sem HTML á vísi.is. Fréttablaðið hefur lengi boðið netverjum upp á að hlaða niður blaðinu sem PDF, en þessi útfærsla sem ég uppgötvaði ekki fyrr en fyrir 2 dögum síðan er einstaklega vel útfærð:
? Hægt er að skoða sem opnu, eða stakar síður
? Hægt er að hoppa beint inn á valda síðu (þarf ekki að fletta gegnum allt blaðið)
? Staka blaðhluta er einnig hægt að velja og hoppa beint í (Allt, sérblöð).
? Upplausnin er stillanleg
? Lesandinn smellir á grein sem hann vill lesa eða mynd sem hann vill skoða, og hún poppar upp í læsilegri stærð!
Smaaart!

Leave a Reply