Hávær meirihluti í Vatnsmýrinni

200704230901 Ég get nú varla annað en gert athugasemd við orð Árna Gunnarssonar hjá Flugfélagi Íslands í Fréttablaðinu í dag. Hann segir:

“Ég held það sé frekar hávær minnihlutahópur [höfuðborgarbúa] sem vill taka flugvöllinn úr Vatnsmýrinni og færa hann annað.”

Eftir því sem ég sé best þá vilja 46% fólks á höfuðborgarsvæðinu halda flugvellinum í Vatnsmýrinni á meðan meirihlutinn skiptist milli þriggja annarra kosta.

Aftur á móti er greinilegt að meirihluti landsbyggðarinnar (og landsmanna í heild) kysi helst að halda flugvellinum í Vatnsmýrinni… samkvæmt þessari könnun.

Leave a Reply