Hugmynd um öryggi?

Ég var á ferðinni í dag og rakst á svolítið áhugavert fyrirbæri. Um er að ræða dyr sem eru læstar að utan og innan. Það þurfti sérstaklega að hleypa inn í bygginguna, en til að komast út þurfti að slá inn öryggiskóða. Gott með það.

Að erindi loknu þurfti ég að komast út. Fyrir ofan lyklaborðið þar sem maður slær inn kóðann til að komast út var lítill blaðsnepill. Á meðan ég horfði í kringum mig og velti fyrir mér hvernig ég ætti að opna dyrnar leit ég betur á miðann. Á honum voru nokkrar tölur: Kóðinn til að komast út.

Hefði ekki verið einfaldara bara að hafa opið?

One Response to “Hugmynd um öryggi?”

  1. Halldór Eldjárn Says:

    HAHAHA! Þetta er svona staðfestingarkóði eins og er á commentum! Sennilega til að vélmenni sem fara inn komist ekki aftur út.

Leave a Reply