Hvernig á að brjóta Frón matarkex
Til minnis fyrir mig (og ykkur hin líka), þá borgar sig að brjóta Frón matarkexið þvert á textann á kexinu (á myndinni væri það lárétt). Annars brotnar það í fleiri en tvo bita, öllum til ama. Það tók mig langan tíma að átta mig á því af hverju kexið brotnaði stundum vel í tvo helminga og stundum… ekki.
Smá fróðleiksmoli sem ég greip af heimasíðu Frón er að það er ekki til kringlótt mjólkurkex. Ef það er kringlótt, þá heitir það matarkex. Hvaðan skilgreiningarmunurinn kemur átta ég mig ekki á, en þar hafið þið það.








