Hvernig á ekki að skrifa um kannanir
Stutt og laggott: Ekki skrifa eins og þú sért að lesa upp úr niðurstöðunum.
Texti eins og þessi hér fyrir neðan gerist allt allt of oft:
Hið sama var uppi á teningnum með fasteignaspilið Monopoly, en það kostaði á bilinu 5.800 til 7.000 krónur. Spilið var dýrast í verslunum Eymundsson og Máls og menningar, en ódýrast í Hagkaupum. Aftur var Just4Kids með næstlægsta verðið, og munaði nú þremur krónum.
Ef þetta væri nú bara ein málsgrein úr langri grein, þá væri athugasemd mín óþarflega gagnrýnin. Og ef þetta væri nú bara eina greinin, þá hefði þessi lítil áhrif á mig. En þetta virðist vera landlægt.
Mætti ég biðja um upplýst skrif með birtingu kannana? Hvernig hafa hlutirnir breyst frá síðustu könnun? Hafa niðurstöðurnar einhverja merkingu sem ekki er hægt að lesa úr töflunni? Eitthvað sem gefur upplýsingunum á töflunni dýpt!
Rifjið þetta upp þegar nær dregur kosningum. Þá dynja yfir mann svona greinar sem kasta í mann prósentum eins og frosnum snjóboltum ? maður fær ekkert út úr þeim nema hausverk.








