Hvítir flekar í náttúrunni
Í stuttri grein sem heitir “Uppáhaldshúsið mitt” er fólk að segja frá… uhm… uppáhaldshúsinu sínu. (Ég hef reyndar ekki séð nema eina slíka, en tel óhætt að ætla að þetta sé nálgunin.) Í hvaða blaði þetta var man ég ekki.
Í greininni sem ég las var arkitekt að tilnefna uppáhaldshúsið sittmeð þeim orðum að hvítu hreinu fletirnir sem mynduðu efri hæð hússins kölluðust skemmtilega á við náttúruna í kring.
Þetta er eins og að segja að olíublettirnir í vatninu myndi skemmtilega stemmningu. Að ræsislyktin í fjörunni gefi svæðinu karakter.
Húsið á myndinni er eftir Frank Lloyd Wright. Hann kunni að láta hús falla að umhverfinu í kring.








