Jólagjafahugmynd til Þorra: Kindle

200711201244 Amazon hafa gefið út græju sem mig langar svooo mikið í! Tækið heitir Kindle og er sérstaklega hannað til að lesa bækur, blogg, dagblöð og fleira þess háttar. Þetta er lítið og létt tæki með batterí sem dugar í allt að viku en dugar að setja í hleðslu á tveggja daga fresti ef það er kveikt á sækninni (sem er nú heila málið).

Til að nota Kindle þarf ekki tölvu, ekki síma, ekki tengingu við eitt eða neitt. Tækið virkar eitt og sér ? og það er hægt að skipta um batterí. Há-upplausnar skjár, þráðlaus tenging með EVDO neti (hef ekki tíma til að gúggla það núna), 88.000 titlar af bókum og fer vaxandi, fullt af dagblöðum (erlendum) og meira og meira.

Verst er að ég reikna ekki með að þetta virki nema í landinu í vestri. Þá er ég að hugsa til þessarar EVDO skammstöfunar. (Endilega skutlið inn athugasemd til að fylla í eyðurnar).

Vá, hvað mig langar í þetta!

4 Responses to “Jólagjafahugmynd til Þorra: Kindle”

  1. Pétur Says:

    Þessi skammstöfun vísar í net sem e-ð símafyrirtæki í USA er með sem ég man ekki hvað heitir. Það er víst ekki hægt að kaupa þetta nema maður sé með USA addressu og USA kredit kort. En þetta virkar annarstaðar í heiminum. En til að kaupa efni í þetta þarf líka að hafa addressu og kort frá USA. Frekar fúlt. Mig langar einmit mikið í þetta.

    Vá… var allt í einu að sjá hvað þetta er gömul færsla hjá þér.

  2. Þorri Says:

    Ég væri samt enn til í eitt stykki. Reyndar eru 2 aðrar græjur á sama lista:
    - Sony Reader, sem er mjög laglegur
    - iPhone er víst mjög keppnis í rafbókunum, fyrir utan allt hitt sem græjan getur gert.

    Sony Readerinn var einmitt kominn ofar en Kindle á listanum hjá mér út af EVDO ruglinu, þó það geti vel verið hægt að fara fram hjá því í dag.

  3. Ausa Says:

    Vitið þið hvort það sé hægt að nota Sony e-book readerinn hér á landi?

  4. Þorri Says:

    Það er auðvitað hægt að nota bæði Kindle og Sony eReader hér heima. Hins vegar eru ekki allir (enginn?) netkaupa-fítusar virkir á Kindle. Kindle er mjög ameríkumarkaðs-fókuseraður, en mig minnir það sé samt alveg hægt að kaupa e-bækur og setja í hann með USB snúru.

    Ég held hægt sé að nota báðar græjurnar hér heima, en þegar ég var að kynna mér þetta fékk ég á tilfinninguna að Kindle væri græja sem maður gæti notað “þrátt fyrir…” — á meðan eReader væri græja sem maður gæti notað.

Leave a Reply