Kjarnmiklar fyrirsagnir í Fréttablaðinu

Það eru tvær frábærar fyrirsagnir í Fréttablaðinu í dag (bls. 10). Annars vegar er skemmtilegt innrím og hins vegar hefur blaðamaður séð skyldu sína til að segja blákalt frá raunveruleikanum, óblönduðum.Sú fyrri gæti verið viðlag í einhverju lagi:

Gömul kvöð ógnar olíuhreinsistöð

Trallalallala!Seinni fyrirsögnin slær þó hina út. Hér er kjarni fréttarinnar sagður í einni setningu.

Börnin geta ekki synt án vatns

Hvern hefði grunað?

Leave a Reply