Kominn tími á Mannlíf?
Ég átta mig ekki á hugmyndinni á bak við síðustu forsíðu Mannlífs. Einhver konar samsuða af Time og Spiegel. Ég ætlaði að skoða innviði Mannlífs á kaffihúsi í morgun, en datt inn í viðtal í sama blaði við Þorvald Þorsteinsson sem ég hef mikið dálæti á. Þegar Soja-Latteið mitt var orðið hálfkalt og viðtalið búið rétt fletti ég í gegnum Mannlíf og leist ágætlega á umbrotið. Hefði gaman af að bera það saman við áðurnefnd blöð. Mannlíf skiptir milli fjór og þrídálks, sem minnti mig á Time, en ég þarf að rifja betur upp umbrotið þar. Kíki á það í bókabúð við tækifæri.











