Kunna blaðamenn ekki að gúggla?

 Wikipedia En 2 24 Marypoppinsposter Um daginn hringdi blaðamaður í mig til að reyna að komast að því hverjir væru eigendur Just4Kids. Það var í sjálfu sér ekkert mál fyrir mig að segja honum það, en mér fannst samt rétt að benda blaðamanninum á að eigendur Just4Kids voru í fréttunum síðustu tvö kvöldin í röð! Ég er nokkuð viss um að gaurinn hefði getað hent bréfaklemmu blindandi og hún hefði lent á einhverjum í herberginu sem hefði getað sagt honum frá þessu.Annað áhugavert dæmi um blaðamann er í 24 stundum í morgun. Þar er plötudómur um nýjustu afurð hljómsveitar sem heitir Sometime. Ég veit ekki til þess að ég hafi heyrt í þessari grúppu. Hvað sem því líður, þá er titill plötudómsins “Óþjálasti plötudómur sögunnar”. Þar segir blaðamaður:

Ég er ekki frá því að titillinn hafi verið búinn til með það í huga að gera plötugagnrýnendum lífið leitt; nú þegar ég er búinn að lesa nafnið þrisvar yfir án þess að vera viss um að ég sé ekki að gleyma stöfum. 

Einfaldast hefði náttúrulega verið að skreppa á Wikipediu, slá inn byrjuninni á nafninu og fá þessa niðurstöðu:

Supercalifragilisticexpialidocious (IPA pronunciation: [?su.p??kæ.l??fræ.d??l.?s.t?k??k.spi.æ.l??d??.??s]) is a word in the song with the same title in the musical film Mary Poppins. The song was written by the Sherman Brothers. 

Þá er það bara spurning um copy/paste. Hann hlýtur að kunna það!

Leave a Reply