Léleg nýting á pixlum

Ég horfði á gamlan vin minn, Ingimar Karl Helgason, segja frá markaðsfréttum á Stöð 2 á meðan ég borðaði heimatilbúnu túnfisksamlokuna mína. En Marri er ekki tilgangur þessarar færslu (enda er hann góð nýting á pixlum). Hins vegar var sýnt graf sem var heldur tómt og rissaði ég það lauslega upp eftir minni:

Af hverju er aðeins 1/3 af skjánum nýttur undir upplýsingar? Er ekki hægt að segja stærri sögu? Eins og t.d.:

Hér eru síðustu 12 klst. í ímyndaðri hreyfingu á þessum hlutabréfum. Allt önnur og skýrari saga.

Ég fékk smá bakþanka á síðustu stundu og datt í hug að e.t.v. væri lokað fyrir kaup og sölu á bréfunum utan skrifstofutíma og því engin hreyfing á næturnar. Það má þó leysa með einföldum hætti: Breyta fyrirsögninni og sameina lokun og opnun á einum punkti. Hér ímynda ég mér að lokun sé kl. 18 og opnað sé fyrir kaup kl. 6.

Yfirsést mér eitthvað? Veist þú af hverju eðlilegt gæti verið að sýna upplýsingarnar jafn sparlega og gert er í efsta grafinu?

Leave a Reply