Nýir tímar og gamlir

Protests in Central Reykjavik

Það hafa verið settar inn athugasemdir á Flickr hjá mér, þar sem mér er boðið að skrá myndir inn á “Nýja tíma”. Ég gat nú ekki annað en bent viðkomandi á textann sem fylgir t.d. myndinni að ofan en þar segi ég: “I got cold shivers when I saw these flags. I despise the iconography and the use of the Icelandic flag in it.” Mig langar ekkert að tengjast þessum samtökum.

Frænka mín sendi mér PowerPoint fjölpóst áðan. Ég sendi aldrei fjölpóst áfram — og mun ekki heldur senda þennan. Hins vegar finnst mér efni póstsins svo mikilvægt að ég get ekki hent honum og hef ég því ákveðið að hýsa eintak af skjalinu hér, svo fólk geti sótt skjalið ef það vill.

Hér geturðu sótt skjalið. Efni þess má aldrei gleymast.

Tengjast þessar málsgreinar? Auðvitað ekki. Er það?

Leave a Reply