Og þau lifðu óhamingjusöm til æviloka
Í bókinni The Kindly Ones eftir Neil Gaiman er minnst á uppruna sögunnar um Þyrnirós. Fyrir Disney-væðingu sögunnar, og meira að segja miklu fyrr en það, þá var sagan mun áhugaverðari ? það er að segja ef þér finnst mannát og nekrófíía áhugaverð.
Á The Straight Dope, heimasíðu hins sjálfsskipaða gáfaðasta manni heims, Cecil Adams, svarar hann spurningu lesanda um uppruna ævintýranna. Stutt lesning og vel þess virði.
Þeir sem hafa áhuga geta lesið sér meira til um þetta á Wikipediu. Hér er t.d. sagan um Þyrnirós.








