Ómælanlegir pólitíkusar

Kostnaður vegna færslu hringtorgs á Nýbýlavegi verður “óverulegur”, segir hinn dimmraddaði bæjarstjóri Kópavogs.

Það er vinsælt tæki hjá stjórnmálamönnum að nota ómælanleg hugtök til að halda sér á gráa svæði loforðanna. Bróðurpartur kosningaloforða fyrir kosninga nota ómælanleg hugtök. “Betri samgöngur”, “lyfta hag fjölskyldna”, “byggja undir mannlíf í miðbænum” og fleira eru dæmi um slíkt. Ef loforðið býður upp á spurninguna “hvernig?”, þá er líklegt að loforðið sé ómælanlegt. Annars væri svarið innifalið í loforðinu. Stjórnmálamönnum fer vel að nota ómælanleg hugtök, því það er ekki hægt að nota þau gegn þeim.

Prófum til dæmis “óverulega kostnaðarhækkun”. Miðað við hvað? Varla miðað við fjármál heimilanna. Varla miðað við fjármál einstaklinga. Kannski óveruleg hækkun hlutfallslega miðað við heildarkostnað framkvæmdarinnar?

Mætti ég fá krónutöluna, takk. Þá getum við talað um hvað er óverulegt og hvað ekki.

Leave a Reply