Opið bréf til Einkabankans

 

Af einkabanki.is

Góðan dag,

mig langar að gera athugasemd við valið skjalasnið á reikningsyfirlitum í einkabankanum.

Á meðan ég skil vel að boðið sé upp á Excel skjöl, þá skil ég ekki af hverju það er eina skjalasniðið sem boðið er upp á. Ég veit Excel er mjög algengt forrit og að mörg forrit geta lesið Excel skjöl, en það er samt ekki eini valkosturinn og því svolítið dónalegt að bjóða aðeins upp á það.

Þetta hefur með aðgengi að gera — svipað því að texta íslenskar myndir fyrir heyrnaskerta eða setja upp rampa fyrir fatlaða við hlið trappa.

Óska ég því eftir því að CSV verði tekið upp samhliða Excel.

PS. Yfir heildina er einkabanki.is mjög vel heppnaður vefur, aðgengilegur og mjög laglegur. Athugasemd mín að ofan á aðeins við um þetta litla atriði sem ég er viss um að þið munið laga.

Kveðja,
Þorri

[Bréfið var einnig sent til forritara einkabankans].

Leave a Reply