Prjónaðar fréttir

200709061349 Þar sem afmælið mitt er á næstu dögum er ekki úr vegi að ég fari að benda á hina og þessa hluti sem eru heppilegir í pakkann :)

Þessar peysur eru til sýnis á Ars Electronica sýningunni og mig dauðlangar í eitt stykki. Munstrið á peysunum er búið til úr upplýsingum sem fengnar eru af Netinu, t.d. fréttir dagsins. Einnig nokkur mismunandi gröf. Flottast væri að fá peysu með fréttum afmælisdagsins.

Verst er að mér sýnist þetta bara vera sýningareintök enn sem komið er. Jæja, þá bara á næsta ári!

[Spottað á: Infomation Aesthetics]

Leave a Reply