Ráðherrar áfram jafnari en aðrir
Ég veitti þvi ekki athygli á sínum tíma, en á meðan Stöð 2 síendurtekur loforð Ingibjargar Sólrúnar um endurskoðun lífeyrismálsins alræmda, þá furða ég mig á því að enginn gerir athugasemd við orðalag hennar, hvorki þá né nú.
Samfylkingin mun beita sér fyrir því að lögum um eftirlaun æðstu embættismanna verði breytt og meira jafnræði komið á í lífeyrismálum ráðamanna og almennings.
Hvernig myndi fyrrverandi Kvennalistakonan taka því ef aðeins væri stefnt að meira jafnrétti meðal karla og kvenna? Ekki algjöru jafnrétti, bara meira jafnrétti.
Sem sagt, ef allt gengur upp þá megum við láta okkur hlakka til þess að sjálftaka ráðherra verði minni í framtíðinni en nú er. Jei.








