Sá fordómalausi fordæmir fordóma

Heimsendaspámaðurinn Magnús Þór, varaformaður Frjálslyndaflokksins, kallar Kristinn H. fordómafullan. Sem sagt: The pot calling the kettle black. Hér er ágætt dæmi um það hvernig Magnús nálgast hlutina af þekkingu (svör af vef Egils Helgasonar á eyjan.is):

2. júní, 2008 kl. 21.32 Ég hef nú ekki mikið fylgst með Írlandi og því miður aldrei komið þangað.

… og svo aðeins neðar…

13. júní, 2008 kl. 9.04 … Samt er hann mjög sannfærandi í því sem hann er að segja, og það er lýsa ástandinu í írsku þjóðfélagi eins og það er raunverulega í dag.

Magnað hvað Magnús er glöggur á að ná skýrri heildarmynd af írsku þjóðfélagi á nokkrum dögum. Eins og það raunverulega er. Ég læt vera að fjalla meira um opinn huga og fordómaleysi Magnúsar eða undirskriftarlistann gegn einstæðum Palestínskum mæðrum á AkranesiFlogging a dead horse, held ég enskumælandi segðu.

Leave a Reply