Til að fara til vinstri, þá beygir þú til hægri
Forvarnarhús tryggingafélagsins Sjóvár var að kynna nýja tillögu af gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Á meðan ég fagna því að Forvarnarhúsið haldi umræðunni gangandi og eins að því sé skilað í svona skýrri og góðri teikningu, þá er innbyggð villa í henni. Sama villa og gerir brú Réttarholtsvegar yfir Miklubraut óþolandi.
Þegar ég keyri suður Réttarholtsveg áleiðis að brúnni yfir Miklubraut, þá þarf að slökkva á öllum tilfinningum og rökvísi og muna muna muna: Vinstri til að beygja til hægri og hægri til að beygja til vinstri. Það er að segja, til að fara niður í bæ, þarf ég að elta götuna eins og ég sé á leið út úr bænum.
Sama gerist á tillögu Forvarnarhús Sjóvar. Til að fara af Bústaðavegi upp í Breiðholt, velur maður vinstri veginn. Til að beygja niður í bæ velur maður veginn til hægri.
Með öllum kóngsins hugsuðum og öllum kóngsins verkfræðingum, þá hljótum við að geta hannað veg sem leiðir okkur ekki út í buskann.








