Til hvers er Bubbi að blogga?
Ég velti því fyrir mér hvers vegna kóngurinn heldur úti bloggi þar sem hann verður ofboðslega hissa á að fólk bregðist við því sem hann skrifar. Hann hlýtur að gera sér grein fyrir að vefurinn hans er opinn öllum. Fyrir hvern væri hann annars að skrifa?
Alltént er ég mjög þakklátur öllum (báðum?) sem hafa fyrir því að lesa það sem ég skrifa.
PS. Það var áhugavert að heyra hann segja að oft megi “satt kjurt liggja” og fara beint úr því í að endurtaka álit sitt á sönghæfileikum Bigga ? tvisvar.








